Lífið í Derby

Tuesday, January 10, 2006

Stund milli stríða..

er í andleysiskasti yfir lærdómnum þannig að ég ákvað að henda inn bloggi..

Góðar fréttir - Ingó ákvað að sækja um í háskólann hérna og ætlaði að reyna að fá inn á þeim skólagjöldum sem heimamenn og íbúar þeirra landa sem eru í Evrópusambandinu borga, s.s. 1.175 pund, á þeim forsendum að hann sé "farandverkamaður" eða migrant worker. Hann sótti um það hjá skólanefnd í bænum og fékk svar til baka um að hann eigi rétt á því að sækja um á þeim skólagjöldum. Hann sækir um upp í skóla og fékk inn, að sjálfsögðu. Það sem er best við þetta allt saman er það að þar sem að hann er undir einhverjum tekjumörkum þarf hann ekki að borga krónu af skólagjöldunum og fær auk þess styrk upp á 600 pund sem hann fær greidd út í þremur greiðslum yfir önnina! Bara geggjað! En já, þá er Ingó sem sagt að fara að setjast á skólabekk á ný, og fara að stúdera sögu - ekkert smá glæsilegt :)

Ég er búin að taka eitt próf og veit að ég náði því, hef þó ekki fengið úr því ennþá, einkunnin átti að koma inn í dag en er ekki enn komin. Hún kemur vonandi inn á morgun. Seinna prófið er á morgun og ég er búin að vera ótrúlega andlaus í dag að reyna að læra. Ég svo til Portúgal á hinn daginn, hlakka til að hitta Tinu aftur og fara til Lissabon, og slaka á! Ingó var að spá í að hitta John einhvern staðar í Cornwall en það var dýrara fyrir hann að fara þangað en fyrir mig að fljúga til Portúgal.. furðulegt..

Lára og Dóri voru hjá okkur yfir áramótin, æðislegt að fá þau í heimsókn. Ég gat ekki verið jafn mikið með þeim og ég hefði viljað vegna lærdóms, en þau 3 voru dugleg að fara í bæinn og Ingó fór með þau upp í Ashbourne að skoða. Fórum út að borða á gamlárskvöld, og vorum bara komin snemma heim, horfðum á skaupið á netinu og flugeldana á BBC, beint frá London. Mjög flottir flugeldar, en held að það jafnist ekkert á við flugeldana heima. Pabbi hringdi á slaginu 12 og þvílík læti í kringum hann, hann heyrði varla í mér.

Við áætlum svo að koma heim 3. apríl, ég er búin að bóka miða fyrir mig en Ingó vissi ekki hvernig vinnan yrði, þannig að hann á eftir að bóka fyrir sig. En af því að hann verður byrjaður í skólanum fær hann jafnlangt frí og ég, þannig að ef allt gengur upp, miðalega séð, þá verðum við heima í tæpar 3 vikur :)

Jæja, Ingó var að koma með McDonalds handa mér, ætla að skófla því í mig og vona að andinn komi yfir mig sem fyrst!!

12 Comments:

  • At 7:37 PM, January 11, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Frábært - sendi læristraumana mína sem ég hef sparað, þar sem ég þarf víst ekki á þeim að halda á næstunni!

    Gangi ykkur báðum vel í skóla. Frábært að heyra.

    Hlakka bara til að hittast í páskapóker, hverjir skulda hverjum kippu?

    Grasekkjan í Eskilstuna

     
  • At 8:01 PM, January 11, 2006, Blogger rydeen said…

    Takk fyrir læristraumana, við borgum þér þá til baka þegar þú þarft á þeim að halda aftur :) Og bjórinn já *hóst*... það verður gert upp um páksanna ;)

     
  • At 12:21 AM, January 12, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Hæ hæ. Gleðileg jól og gleðilegt ár. Takk æðislega fyrir jólakortið, fékk hálfgert samviskubit að hafa ekki bara sent ykkur þrátt fyrir að það hefði komið of seint. En allt gengur vel hérna ný orðin 25 ára og fæ bílprófið mitt bráðum, finally. Er að fara að kaupa mér bíl og svo byrjar allt brjálæðið í skólanum 17. janúar.
    Vonandi gengur þér vel í prófunum og hlakka til að sjá ykkur í apríl

     
  • At 3:54 PM, January 12, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Gott mál, á fáa læristrauma eftir en sendi samt nokkra. - alltaf gaman á skólabekk ;) "hóst" amk til lengri tíma litið. Við forum heim líka um páskana þannig að það ætti að vera möguleika á að hitta á ykkur.

    Bestu kveðjur frá koben
    Haukurinn

     
  • At 3:25 PM, January 16, 2006, Anonymous Anonymous said…

    frábært að heyra að ykkur vegnar vel í Derby.
    Saga er málið
    Kv Dana og fam.
    blogcentral.is/mafia

     
  • At 2:28 PM, January 17, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Vonandi gengur þér vel að læra :) skal hugsa til þín :) gaman að heyra að Ingó er kominn í sögunám í Háskólanum, sé hann alveg fyrir mér brillera þar :)
    Kv. Agnes :)

     
  • At 12:17 AM, January 21, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Glæsilegt hjá Ingó að fara líka í skóla...ég hugsa allaf til ykkar þegar ég horfi á CSI:) og nottla miklu oftar...:)

     
  • At 12:23 AM, January 21, 2006, Anonymous Anonymous said…

    En eitt enn..ég man að þú varst einhverntímann að tala um í blogginu að Footballee´s Wives væri á undan hér á klakanum...nú er sú sería búin hér og man...hvað það endaði spennandi...get ekki beðið eftir næstu...þetta var alltof stutt sería...hvernig er staðan hjá ykkur...er serían búin?

     
  • At 9:56 PM, January 21, 2006, Blogger rydeen said…

    Rut - hvernig finnst þér að vera orðin 25? ég er ennþá að venjast því ;) gott að heyra að það gengur allt vel, og til hamingju með að fá prófið, eykur aðeins á frelsið.

    Haukur - takk fyrir læristraumana, hefði haldið að þínir straumar væru allir búnir ;) hlökkum til að hitta ykkur um páskana, þetta verður bara eitt allsherjar reunion!

    Heiða - takk fyrir það, skila lukkunni til ingós, heyri í þér um helgina :)

    Dana - hæ skvís, alltaf gaman að sjá ný "andlit" á blogginu ;) ég adda þér á kontaktlistann, gaman að gera fylgst með ykkur.

    Agnes - takk fyrir það, og ég er alveg sammála, ingó á bókað mál eftir að brillera! gangi ykkur báðum líka vel í skólanum :)

    Sveina - hehe ég ruglaðist með footballers wives, 5. sería er að byrja hjá okkur núna bara í vikunni held ég, þannig að ég missti af 4. seríu.. hún kemur þó út á dvd í apríl og ég get ekki beðið!

     
  • At 12:43 AM, January 26, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Það er soldið skrítið að vera orðin 25 ára. En það venst. Maður er allt í einu orðin svo gamall. En ég er ennþá spurð um skilríki þegar ég kaupi mér sígarettur þannig að ég er greinilega ennþa 17 ára. Þannig að ég verð 20 þegar ég verð 30 mjög gott.

     
  • At 6:05 PM, January 26, 2006, Anonymous Anonymous said…

    afhverju bloggaru ekki neitt :(

     
  • At 7:31 PM, January 26, 2006, Blogger rydeen said…

    æ sorrý, er í einhverri bloggleti þessa daganna.. :S lofa bloggi innan skamms :)

     

Post a Comment

<< Home