Lífið í Derby

Monday, June 18, 2007

Góða sumarveðrið..

eða hitt þó..

Búið að vera rigning hérna síðan á föstudaginn, með smá hléi í gær. Byrjaði um leið og ég labbaði út úr vinnunni kl. 4, var búin að hlakka til frá hádegi að fara heim í góða veðrinu og slaka á úti í garði með hvítvínsglas. Matt sendi mér skilaboð um að það væri þrumuveður heima og svo stuttu seinna fór rafmagnið af hálfu þorpinu. Ég keyrði í því sem byrjaði smá rigning og grá ský, inn í beljandi vatnsfall og grágrænbrún ský - með eldingum. Ég var skíthrædd á leiðinni, sá varla út um framrúðuna fyrir rigningunni, og göturnar voru á floti, þannig að ég sá varla hvert ég átti að fara. Var guðslifandi fegin að komast heil heim.

Rafmagnið kom svo aftur á um 6 leytið, sem hentaði mjög vel fyrir sjónvarpsplanið, þá sérstaklega fyrir Big Brother. Eftir Big Brother setti ég Canada's Next Top Model á. Náði að horfa á 10 mínútur áður en rafmagnið fór aftur, og það kom ekki á fyrr en um 10leytið morguninn eftir. Fannst það reyndar æði, finnst rafmagnsleysi svo skemmtilegt og slakandi. Daginn eftir rigndi aðeins meira og fengum smá fleiri þrumur. Heyrði svo í morgun í útvarpinu að það hafi þarna rignt jafn mikið á 24 tímum og rignir vanalega á einum mánuði. Skemmtilegt það. Not.

Hélt svo að þessu væri mest öllu lokið, en - að sjálfsögðu - um leið og ég labba úr vinnunni kl. 5 í dag fór að rigna aftur, og í þetta skiptið tvöfalt meira en rignt hafði á föstudaginn. Sá ekki baun út um rúðuna í þetta skiptið, vantar súperstillingu á rúðuþurrkurnar mínar... :/

En að vinnunni..

Ég er alveg að fíla mig í botn, búin að læra að gera fullt af prófum og búin að sulla haug með sýru, verður varla skemmtilegra en það. Sullaði smá sýru á sjálfa mig líka en það verður að fylgja, er það ekki? Vænti þess að ég verði með nokkra bruna á handleggjunum eftir þetta sumar. Get alveg séð mig vinna við efnafræði í framtíðinni. Hef beint náminu mínu meira að efnafræði en ég hélt að ég myndi gera, bjóst við að ég færi líffræðileiðina. Hef því spáð í að fara í master í réttarefnafræði í framtíðinni.

Farin að horfa á Britain's Next Top Model, hafið það gott! :)

9 Comments:

  • At 9:02 PM, June 21, 2007, Anonymous Anonymous said…

    þarf maður semsagt að koma til Derby til að fá gömlu stemminguna með rafmagnsleysið, væri sko alveg til í það. Við erum allavega með sól þessa dagana , very nice :)

     
  • At 6:12 PM, June 22, 2007, Blogger rydeen said…

    Það rignir ennþá hjá mér.. er farin að halda að það fylgi mér rigning í júní!! ;)

     
  • At 6:19 PM, June 23, 2007, Blogger Vigdis said…

    Er að já að reyna að halda smá lífi í þessu dauða bloggi.. gaman að fá komment frá þér. Ég er s.s. ekki gleymd! :o)
    Sakna þín rosa mikið, vildi að ég gæti komið til þín í heimsókn fljótlega.. Við Linda munum þó vera í London 7.-9. sept. nk. Vinnan mín er að bjóða öllum á Police tónleika, hihi.. Væri æði ef þú ættir akkúrat leið til London þessa helgi og gætir fengið þér einn/tvo bjóra með okkur :o)

     
  • At 1:20 PM, June 24, 2007, Blogger rydeen said…

    Ohh já það væri æði! Mun hafa þessa dagsetningu í huga og passa að ég verði laus svo ég geti kíkt á ykkur :)

     
  • At 1:04 PM, June 28, 2007, Anonymous Anonymous said…

    ertu nokkið drukknið??..... :)

     
  • At 1:04 PM, June 28, 2007, Anonymous Anonymous said…

    hehehe..... átti að vera sko drukknuð :)

     
  • At 4:48 PM, June 29, 2007, Blogger rydeen said…

    hahaha nei, ekki ennþá allavegana ;)

     
  • At 11:10 PM, July 02, 2007, Blogger Unknown said…

    Elsku frænka, hér eru allir að sálast úr hita. Við fórum á "ströndina" í dag, ég, Anna, SS og vinur hans, til að kæla okkur í sjónum :-)Já, já, maður er bara komin með sólsting af allri sólinni á Íslandi. Ennnnnnnnnnn "svona er Ísland í dag"
    Allir biðja að heilsa. Og hafið það sem allra,allra best. Og knús til mömmu þinnar þegar hún kemur.
    luv yaa xxx

     
  • At 5:36 PM, July 06, 2007, Blogger rydeen said…

    Hér rignir ennþá *andvarp*

    Á að vera betra um helgina, ekki rignt mikið í dag en samt smá. Vonandi helst þurrt á morgun! Knúsaðu Sigga Sverri sæta frænda frá mér :)

     

Post a Comment

<< Home