Lífið í Derby

Saturday, June 09, 2007

Download festival á morgun...

Byrjaði í gærkvöldi en við komumst ekki fyrr en á morgun, get ekki beðið! Aðalatriðið er náttúrulega að sjá Iron Maiden, var í Portúgal þegar þeir spiluðu heima, hlakka til að heyra Run To The Hills! :) Getið horft á festivalið live hérna og séð line-upið hérna. Er að horfa á Slayer spila núna, væri endalaust til í að vera þarna núna!

Byrja ekki í vinnunni fyrr en á mánudaginn og er farin að kvíða ótrúlega mikið fyrir, en hlakka sam þvílíkt mikið til líka.. erfið svona blanda.. ef mér hefði verið sagt fyrir einhverjum árum síðan að ég myndi vera að vinna á efnafræðirannsóknarstofu á þessum tíma, hefði ég ekki trúað því..

Kominn tími á grillkjötið, dagurinn búinn að vera geggjaður og ég er komin með brúnku - bölvað að þurfa að vinna í næstu viku, væri alveg til í að liggja úti í sólinni aaaaðeins lengur ;)

Heiða á afmæli í dag og Guðrún Jóna "litla" systir á morgun, til hamingju með afmælið báðar tvær! :)

Hafið það gott...

1 Comments:

  • At 11:46 PM, June 12, 2007, Anonymous Anonymous said…

    hei babe, þá ættu 2 dagar í vinnu að vera búnir... hmm... hlakka til að heyra hvernig var sæta, en það var gott að heyra í þér um helgina.. smúss sæta

     

Post a Comment

<< Home