Lífið í Derby

Thursday, February 01, 2007

Hmm.. nýr blogger..

Vona að hann verði góður við mig..

Bara láta vita að ég er á lífi, er að bíða eftir því að sækja Heiðu, Siggu, Ásu og Tanyu upp á East Midlands flugvöll, hlakka til að fá þær í heimsókn.

Mikið búið að gerast á meðan bloggleysi hefur staðið....

Hélt upp á 26 ára afmælið mitt á afmælisdeginum, mamma og amma Brynja komu í heimsókn um helgina og það var æðislegt að fá þær yfir. Fór með þeim og Matt út að borða á La Tasca, og ég reyndi að draga þær með mér á djammið eftir á, tókst að draga þær aðeins inn á Coyote Wild en svo stungu þær af.. Set inn myndir þegar ég hef tíma og nennu, tekur allt of langan tíma að hlaða niður myndum á myphotoalbum.. einhverjar uppástungur af öðrum myndaalbúmum á netinu??

Fór á tvenna tónleika, fyrst á Muse í Nottingham sem var að sjálfsögðu snilld. Spiluðu alla nýju plötuna í gegn fyrir hlé og tóku svo bestu lögin eftir hlé.. geggjað! Fór svo á Morrissey í desember, og það sem meira er þá keyrði ég til Nottingham þar sem tónleikarnir voru, hefði aldrei gert það ef ég hefði ekki verið með aðstoðarbílstjóra ;) Finnst ég samt algjör hetja.. :) Sá Morrissey aðeins betur þarna heldur en á tónleikunum á Íslandi, tók þá eftir því að hann er aðeins farinn að eldast, en er ennþá jafn ótrúlega flottur! Maðurinn er snillingur...

Skólinn er byrjaður aftur. Nóg að gera strax, enda ekki við öðru að búast. Er búin að sækja um placement hérna í sumar á rannsóknarstofu við sérstakt umhverfisverkefni, vona að ég fái vinnuna... væri alveg til í að vera hérna í sumar, búið að spá því að sumarið verði hlýrra núna en í fyrra, þar sem að janúar var óvenjuhlýr.. ef ég þarf að vera á Íslandi aftur í sumar í rigningu og leiðinlegu veðri meðan veðrið hérna væri eins og það var í fyrra, þá yrði ég ekkert lítið endalaust fúl og pirruð... Djöfull fór það í taugarnar á mér að nærri því upp á hvern einasta dag í júni byrjaði að rigna upp úr 10 eða 11 á morgnanna, maður hélt í vonina á leiðinni í vinnuna að það myndi haldast þurrt og ekki skyggja fyrir sólu, en það klikkaði yfirleitt.. pirpirrpirpririrpr....

Jæja, þarf að fara að gera eitthvað hérna áður en þær koma, vona að ég bloggi aftur bráðlega..!

9 Comments:

  • At 8:30 AM, February 02, 2007, Anonymous Anonymous said…

    Heyrðu, ég mæli með photoape.com. Það forrit minnkar myndirnar fyrir mann þannig að þær eru ekki eins lengi að hlaðast :)

     
  • At 3:33 PM, February 02, 2007, Anonymous Anonymous said…

    Takk fyrir að blogga :) Alltaf gaman að geta fylgst aðeins með þér úr fjarska...

     
  • At 3:52 PM, February 12, 2007, Anonymous Anonymous said…

    ohh... það var svo gaman hjá okkur sæta

     
  • At 6:01 PM, February 13, 2007, Anonymous Anonymous said…

    Þetta var algjört æði takk fyrir okkur sæta

     
  • At 12:31 PM, February 17, 2007, Blogger rydeen said…

    Takk Lena fyrir tad, er buin ad skra mig tar, tarf bara ad downloada myndum nuna :) Takk fyrir jolakortid, aedisleg mynd af Baltasar saeta, og takk fyrir diskanna, hrikalega var gaman hja okkur, endurtokum tetta tegar teir halda naest tonleika!! :D

    Somuleidis Helga saeta, hvad er ad fretta af skolamalum??

    Takk somuleidis stelpur, tetta var aedi, frabaert ad tid hafid komid i heimsokn, hlakka til ad sja ykkur aftur tegar eg kem um paskanna :)

    ps. djofuls skita helvitis nyju druslu blogger, don't like it one bit!!!!

     
  • At 1:51 PM, February 17, 2007, Anonymous Anonymous said…

    hæhæ skvís, takk fyrir frábærar stundir í derby ;) hlakka til að sjá þig og strákana þína um páskana!!! smúss SM
    ps.taktu frá 30.apríl, von á miklu stelputjútti þá :))

     
  • At 12:09 PM, February 19, 2007, Blogger helga said…

    Ég kem í fyrsta lagi haustið 2008... Umsóknarfresturinn er frá 1. sept-1. des. svo ég var of sein að sækja um fyrir næsta haust :(
    En mér liggur ekkert lífið á svo þetta reddast einhvernvegin ;)

     
  • At 1:07 PM, February 22, 2007, Anonymous Anonymous said…

    Hæ hæ :) vildi að þú bloggaðir oftar svo maður geti fylgst meira með :)
    en bið að heilsa :)

    Kv. Agnes :)

     
  • At 1:16 PM, March 23, 2007, Anonymous Anonymous said…

    blogga blogga blogga ;) Mig vantar fréttir af ykkur þarna hinum megin við hafið!!! :)

     

Post a Comment

<< Home